Lífið á bænum

snerpa og vnting.jpg
vnting jan 2010 kn siguroddur p 3.jpg


Sprengidagur- hamingjudagur rófubóndans. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
rfur 009 ltil

Þann 21. febrúar nk. er hinn árlegi sprengidagur, en þá er á borðum landsmanna saltkjöt og baunir, með rófum að sjálfsögðu. Sprengidagur er því stór söludagur hjá okkur gulrófnabændum.

Hér er nú allt á fullu í að ganga frá rófum í sölu og fer frá okkur nær 20 tonn af rófum þessa vikuna, fyrir sprengidaginn. Undirbúningur hófst í síðustu viku og voru margir sem komu til hjálpar um síðustu helgi og var þá mikið magn afsett.

Sprengidagur er alltaf 7 vikum fyrir páska, og getur borið upp á 3. febrúar til 9. mars. Talið er að frá síðari hluta 19. aldar hafi saltkjöt og baunir verið étnar á sprengidag en orðið almennt á borðum landsmanna á 20 öldinni.

Hér er svo uppskrift af baunasúpu með saltkjöti.

Hráefni:
Saltkjöt, 1-3 bitar á mann.
Gular baunir, 450 grömm (fyrir 6 manns).
Gulrófur
Laukur
Gulrætur, ef vill

Baunirnar lagðar í bleyti í 6-10 tíma. Það er ekki nauðsynlegt, en það er betra. Kjötið er soðið í vatni. Baunirnar eru skolaðar vel og settar sér í pott með nýju vatni. Einn til tveir kjötbitar soðnir með. Bragðað til með meiru soði af kjötinu, eða vatni ef súpan verður of sölt. Gulrófurnar og gulræturnar eru skornar frekar smátt og soðnar í súpunni, ásamt lauk.


 
Hraunsós opnar heimasíðu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Thumbnail image Hraunsós ehf, sem er í eigu Hrafnkels og Sigríðar, opnar hér með heimasíðu. 
Það er von okkar að hér verði vettvangur fyrir ykkur til að fræðast um starfsemina, og um okkur sem stöndum að þessum rekstri. 
Við stefnum  að því að miðla fróðleik um það sem við framleiðum og væntum þess að síðan geti orðið okkur að gagni við markaðssetningu á afurðum okkar. 
Síðan er ekki fullunnin og á eftir að bæta ýmsu inn, m.a. um reksturinn, jörðina, eigendur og o.s.frv..  
Það er markmið okkar að þið getið einnig skyggnst inn í það sem við, aðstandendur síðunnar, erum að gera í leik og starfi.
Látið í ykkur heyra um það sem betur má fara í þessari tilraun okkar.


Meðfylgjandi mynd er af íbúðarhúsinu (yngra húsið) tekin yfir bæjarlækinn í vetrarblíðu fyrir fáum dögum

Sá sem sett hefur síðuna upp er Alex Ægisson hjá Mola ehf á Selfossi.   Allan texta höfum við hjónin skrifað og safnað saman. Myndir eru teknar af okkur og nokkrar eru frá Brynju dóttur okkar.
 
Doktorsverkefni Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

styrkafhending minniDóttir okkar Brynja hlaut 500 þúsund króna styrk úr Vísinda- rannsóknarsjóði Suðurlands í doktorsverkefnið "Skordýrabeit í landgræðsluskógum og lúpínubreiðum" Styrkveitingin fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurlands  24. jan sl.

Brynja og Sólveig Þorláksdóttir deildu með sér styrkupphæðinni sem úthlutað var í ár, en í heild bárust  18 umsóknir til sjóðsins.

Doktorsverkefni Brynju er rannsókn sem fjallar um áhrif lirfu skordýrs sem ber íslenska heitið ertuygla, sem er fiðrildi af ygluætt.

Brynja er innrituð í Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Leiðbeinendur Brynju eru Guðmundur Halldórsson hjá Landgræðslu ríkisins, Halldór Sverrisson sem starfar hjá Rannsóknarstöð Skógræktar ríkisins og Lbhí og Edda S. Oddsdóttir  hjá Rannsóknarstöð Skógræktar ríkisins.

 


Vefsíðugerð og hýsing Moli.is.